|
|
10.08.2006 17:56:12 / belink
fer ekki að koma tími á það að maður fari að hunskast til að
skrifa hér inn, hef bara nánast ekki opnað tölfuna eftir að skólinn
kláraðist, núna fer að líða að því að maður þurfi að fara læra
meira og þá er eins gott að byrja hita sig upp á
lyklaborðinu.
Það hefur nú mest lítið verið að gera hjá okkur síðan síðasta
færsla fór inn, bara þetta sama gamla, vinna og meiri vinna.
Ég fór vestur í sumarfríinu mínu var í regngallanum mest allann
tímann eins og kanski flestir sem hafa verið hér á klakanum í
sumar. það er teljandi á fyngrum annarar hve margir
sólardagar hafa verið, frekar fúllt. hefði nú
alveg viljað vera í landi baunans í sumar.
»
12.04.2006 20:40:53 / belink
og í raunini ekki meira um það að segja, nema kanski c þig fyrir
vestan
»
30.03.2006 18:09:42 / belink
Takk fyrir já takk fyrir, það var verið að velja mig sem
hemsins versti bloggari, þetta er bara svo leiðinlegt, þegar ég er
búin að lesa og svara tölvubréfum sem snúa að skólanum þá nenni ég
bara ekki meir, ég segi alltaf " æ, ég geri þetta bara á
morgunn svo, þegar á morgunn kemur þá er annar á morgunn ,á
morgunn" "þetta er nú meira bullið" oh fólk ég nenni ekki
að blogga, En nó um það.
Elsku Rebecca mín við verðum endilega að hittasts skvísurnar,
finnum tíma í sameiningu.
Ólöf vinkona mín var að missa góðann og triggann bíl vil ég hér
með votta henni og Axel mína dífstu samúð, þau eiga hug minn
allann.
Nú er hann Malli minn á námskeiði í Danmörku og mun hann vera
þar framm á mánudag, ég reini bara að finna mér góð teppi og hækka
hitann á ofninum svo mér verði ekki kallt
planið fyrir helgina er að fara til Sigríðar siss og fá sér einn
eða tvo gráa, kanski verða þeir fleiri hver veit
gef frekari skýrslu síðar,
vonandi ekki miklu, miklu, miklu
síðar
»
26.02.2006 21:06:39 / belink
jeminn hvað maður er nú latur við að blogga, alveg
ótrúlegt. en jæja maður rgerir sitt besta.
Í gær fórum við skötuhjúin í afmæli til Þóris frænda, nokkuð
gott partý, flottar veitingar og skemtilegt fólk, takk fyrir
mig. Um 3 leitið var haldið í bæinn, það var kjaftað sungið
hlegið og dansað framm til kl 6, þá var farið heim.
Dagurinn í dag hvarf svo eins og dögg fyrir sólu.
Eins og fyrr segir erum við flutt í bústaðinn, ég er farin að
geta sturtað niður þegar mér hentar og farið í sturtu nokkuð
gott.
nenni ekki að skrifa meira held ég fari bara að halla mér
(aftur)
»
21.02.2006 18:27:08 / belink
Þá erum við logsins flutt í bústaðinn, þarf reindar að sturta
niður úr klósettinu með fötu og hlaupa í sturtu til teingdó en
Ég ER FLUTT.
Er að fara í 25 ára afmæli um helgina hjá Þórir frænda, hlakka
geðveigt til, meira seinna
»
08.02.2006 17:13:48 / belink
vildi bara láta vit af mér aðeins, ég hef ekki verið brottnuminn
af geimverum eða neitt svoleiðiss og ég er ekki dauð, það er
bara soldið mikið að gera.
vinna, skóli, sumarbústaður og leti allt spilar þetta
samann.
Viðerum ekki enn flutt í bústaðinn, pípara drus..... er ekki enn
búinn að klára það sem han áttiað vera löngu búinn með. Ég
gerðist svo djörf að taka mér frí frá vinnu í dag til að læra og
var þá heima þegar píparinn mætir, hann kom í bústaðin um hálf 11
og fór aftur um hálf 12. Ég hringi í Malla og klaga, píparinn
kemur aftur umhálf 2 og dúllast e-h og fer að verða 3, það er
ekkert skrítið að hlutirnir gangi hægt hjá honumef þetta er
vinnuferlið sem hann fer eftir, hég er ekki hissa á lélegri
framleiðni í landinu ef þetta eru dæmigerð vinnubrögð
iðnaðarmanna...
Nei nú er ég aðeins að æsast þá er betra að stoppa svo maður
segi nú enga vitleisu.
ég lofa að verða duglegri að skrifa hér inn um leið og ég er
flutt úr skápnum og í skúrinn þá má hver sem vill koma í
heimsókn, ef gengur vel verður það um og eftir páska
meira seinna
blee
»
10.01.2006 13:06:05 / belink
þá er nú komið að bloggi, þó fyrr hefði verið, hef ekki nennt að
vera öflugur bloggari yfir jól og áramót. Var fyrir vestan í
verlistingum hjá mömmu og pabba. Nú er maður kominn í bæinn og
alvaran tekin við. Skólinn byrjaður á fullu. vill svo til að
akkúrat í augnarblikinu sit ég í tíma og þykist vera ógéðslaga
dugleg að vinna tölfunni. Það er líklega best að fara að fylgjast
með því sem verið er að segja, vildi bara láta vitta af því að ég
er enn á lífi.
»
12.12.2005 17:03:06 / belink
þetta er búin að vera góð helgi, átti afmæli í gær og í tilefni
dagsins var mér boðið út að borða á Lækjarbrekku, ummm, Marinó fékk
þessa líka frábæru hugmynd og kom mér svona skemtilega á óvart,
hann leynir á sér drengurinn.
Var að baka jólasmákökunar, tók mér smá frí frá lærdómnum til
þess, átti það skilið. Er á lokasprettinum í prófunum, síðasta
prófið er á miðvikudaginn, fer svo vestur til pabba og mömmu, get
ekki beðið.
meira síðar bæó
»
07.12.2005 17:15:02 / belink
ó Kommentaðu nafninu þínu hér og....:
1. Ég segi þér eitthvað handahófskennt um þig
2. Ég segi þér hvaða lag/mynd minnir mig á þig
3. Ég segi þér hvaða bragð minnir mig á þig
4 Ég segi þér fyrstu ljósu minninguna mína af þér
5. Ég segi þér á hvaða dýr þú minnir mig á
6. Ég spyr þig að einhverju sem ég hef velt lengi fyrir
mér um þig
7. Ef þú lest þetta verðuru að setja þetta á bloggið þitt!
»
05.12.2005 17:36:53 / belink
Ég er
Partítröll
Þú ert nýjungagjörn, tilfinningarík félagsvera.
Partítröllið fylgist vel með nýjustu straumum og stefnum
hvort sem um er að ræða föt, tónlist eða græjur. Það eru 74.5%
líkur á því að það eigi iPod, 61% líkur á því að það eigi Fred
Perry póló bol og 96% líkur á því að það eigi Adidas skó.
Partítröllinu finnst The OC vera skemmtilegur
þáttur.
Partítröllið er vinsælt - eða telur sig að minnsta kosti
vera það. Þótt margir laðist að því eins og flugur að mykjuhaug eru
aðrir sem eru ónæmir fyrir þokka þess og enn aðrir sem hafa jafnvel
ofnæmi fyrir því. Það eru þeir sem eru í eldhúspartíinu á meðan
partítröllið hristir rassinn og baðar út öngum á dansgólfinu.
Þegar gamaninu slotar er partígríman þó fljótt tekin niður og undan
henni kemur viðkvæma blómið sem partítröllið raunverulega
er.
Hvernig Tröll ert þú
http://www.stilbrot.com/trollafell/konnun/
»
04.12.2005 19:13:53 / belink
Það hefur mikið gengið á hjá okkur, eins og fyrr segir þá erum við
flutt heim aftur, búum á Kjalarnesinu í krúttlegum sumarbústað í
eigu tengdó. Malli kemur frá Kína á morgunn, það hefur mikið gengið
á, ég heiri í honum um miðjann daginn en þá er hann að fara að
sofa, það er nefnilega 8 tíma mismunur á okkur. Helgin hjá honum er
búin að vera ggóð. Hann er búinn að skoða alveg helling, ætla bara
að leyfa honum að skrifa smá ferðasögur. Ég er á fullu að læra
fyrir próf, gaf mé smá tíma í blogg, allt Bylgju að kenna. Jólin
verða haldin á Þingeyri, ekki hefur verið tekin ákvörðun með
áramóin. meira seinna
»
04.12.2005 19:02:10 / belink
Ég er ekki Kaffi ég er te
Te!
Þú ert greinilega að taka vitlaust próf, þú átt engan veginn
heima hér í kaffiprófinu. Verandi te ertu þó traustur einstaklingur
sem bregst ekki vinum þótt lífið liggi við.
Þú ert svart te í vel heitu vatni.
Samkvæmt kaffiprófinu er ég
Svart te!
.. þótt það hljómi furðulega.
Hvernig kaffi ert þú
eiginlega?
»
20.11.2005 21:33:59 / belink
Jæja þá er þetta ævintýri búið og við klár í næsta. Malli
hætti í skólanum og við erum flutt heim, komum til með að búa í
sumarbústað uppá kjalanesi þegar búð er að innrétta
hann, þangað til verðium við hjá tengdó.
Það var sko veslað í gáminn áður en farið var heim, ég er ekkert
smá ánægð, það eru ekki allir sem þurfa gám undir draslið sem þeir
vesla í útlöndum
Malli er að fara til kína á næsta sunnudag, já ég sagði kína,
hann er að fara á námskeið í því hvernig á að setja upp lyftur,
hann verður í burtu í 10 daga. Hann kemur mátulega fyrir afmælið
mitt svo það er eins gott að ég fái góða gjöf 
Þetta er það helsta af okkur
»
14.11.2005 20:50:19 / belink
Ó hvað ég er löt við að blogga en betra er seint en aldrei, það
helsta af okkur Marinó að frétta er það að við erum ´heimleið,
Malli hefur ákveðið að hætta í dönskum skóla og halda sig við þann
íslenska, við komum heim í lok mánaðarins, það verður bara gaman,
þetta er búið að ver gott ævintýri. Við á Sálina í Köpen ó hvað það
var gaman, fórum saman ég og Malli, Axel og Ólöf, lögðum af stað
snemma í laugardeginum fengum okkur hótel, og þrömmuðum strikið. Á
sunnudeginum Kom hann Þórir, pabbi hans Malla til DK, hann var að
fara til þýskalands í viðskiftaferð og nema hvað við fengum bara að
fljóta með, skildum við Axel og Ólöfu og héldum á rauð til
Þýskalands, það var gist á hótelum skoðaðar kirkjur keirt um
Móleldalinn verslað hvítvín borðaður góður matur og haft það gott,
komum heim á fimmtudegi, það besta var samt það að mín þurfti alveg
endlega að versla sér fatnað því hún hafði aldrei þessu vant ekki
tekið fataskápinn með sér, var bara með djammföt því hún var að
fara ball. Á föstudeginum var spurningakepni milli fótboltastráka
og saumaklúbbshvenna og fór maður auðvitað og hvatti ánframm sínar
konur, unnu strákarnir naumlega með 1 stigi en stúlkur höfðu haldið
foristu mest allann tíman, Þórdýs var hetja liðsins þegar hún
fórnaði sér fyrir vinkonurnar og tók 3 skot af ógéði, ég er stollt
af þér stelpa. Á laugardeginum var svo partý heima hjá mér, fullt
af fólki í singstar. Hörku fillerý ekki farið að sofa fyrr en um 7
leitið, þá far búið að drekka helling og rúmlega það af bjór,
slatta af skotum fullt af brennivíni. Svo var farið á barinn um 4
og viti menn það var opið, barþjónar og fólk á filleríi, ungar
stólkur í ókristilegum fötum að gera hluti sem pabbi þeirra fær
ekki að vita af. Sunnudagur fór í svefn, var boðið í mat til Gústa
og Þóru, ummm hvað það var gott að borða, takk fyrir mig. Í dag var
farið að vesla, það á að vesla slata áður en farið er heim, hlutir
eru ódýrari hér en heima gaman gaman
»
01.11.2005 17:10:08 / belink
Þá er maður bara kominn heim til Danmerkur, ekki mikið að frétta,
lífið gengur sinn vana gang, förum til Copenhagen um helgina að sjá
Sálina hans Jóns míns spila, hlakka soldið til. Er ekki viss hvort
það verður hópast í rútu og gist á farfuglaheimili eða farið á
kagganum og gist á hótli, kemur í ljós, hlakka allavega mikið til.
»
Síður: 1 2
|
|